Í gær mátaði ég
buxurnar sem ég var alltaf í í upphafi átaks míns
og guð
hvað þær voru orðnar stórar - um rass og læri
sérstaklega.
Ég gat tekið þær beint
niður en þær duttu ekki niður
(fyrstu myndirnar af mér og mynd
-10 kg.)
Þar sem ég hef misst
minnst í cm yfir mjaðmasvæðið en samt þó nokkuð mikið. Eða 18 cm og
í mitti 30 cm frá upphafi læri 10,5 og brjóst 19 cm Jæja þetta er
nú þó nokkuð.
Ég finn hvað ég styrkist
líka jafnt og þétt.
Enda líðanin miklu betri
en hún var, en mér finnst ótrúlegt að það skuli vera nærri 20 kíló
farin
Komin úr buxnastærð 54 í 46.
Var að spá í því að í
upphafi þá þurfti ég að losna við 50 kíló en nú á ég eftir 30,6 og
mér er farið að hlakka til þegar þessi tala verður öfug og þá á ég
ekki svo ýkja mikið eftir en vonandi lækkar hún samt á næsta
þriðjud 
Var að hugsa um það að
þetta er ekki búið að vera svo erfitt en þetta er jú samt hörku
vinna og þar sem eingin töfralausn er til þá verðum við að hafa
fyrir þessu.
Ætla að stefna af því að
vera komin niður í - 20 kílóin næstkomandi þriðjudag og hvort mér
takist það verður frú viktoría að seigja mér nk.
þriðjud.
Eitt er víst að ég ætla
ekki upp aftur, það er nokkuð ljóst. Þetta er einhvað sem mér skal
takast þó að þetta sé ekki auðvelt og mér finnst sárt að sjá fólk
sem á í mínu basli sem nennir ekki að gera neitt í sínum málum og
bíður eftir töfralausn sem kemur ekki
nema í formi fleir kílóa
eftir því sem beðið er leingur eftir einhverji lausn sem er ekki
til.
Það er hugafarið sem
gildir og vera jáhvæður í því sem maður er að gera og ekki spillir
að hafa smá húmor fyrir þessu basli
okkar.
Þakka allar góðu
kveðjurnar enda veit ég ekki hvernig þetta væri ef ég hefði ykkur

Þið hafið verið mér
ómetalegur stuðningur í því sem ég er að gera

Einnig vona ég að ég
geti hjálpað einhverjum með mínum skrifum þó að það væri ekki nema
að koma einhverjum á stað.
Gángi ykkur vel og góða
helgi --- ég kíki á ykkur en ég býst ekki við því að ég setji
færslu inn fyrr en á mánudaginn.